19. febrúar 2026
Orlofskostir aðildarfélaga STF
Orlofskostir aðildarfélaga STF eru víða um land. Stjórnendafélögin bjóða félagsfólki upp á 15 bústaði, 12 íbúðir og 1 sjúkraíbúð víðs vegar um landið. Orlofskostirnir eru í útleigu allan ársins hring og henta því jafnt yfir vetur, vor, sumar og haust – ekki bara í sumarleyfinu.
Forgangur og úthlutun:
Félagar hvers aðildarfélags njóta forgangs að orlofshúsum síns félags á úthlutunartímabili.
Utan úthlutunartímabila geta félagar STNV sótt um orlofshús annarra stjórnendafélaga.
Umsóknir fara fram á félagavefnum https://stf.orlof.is
