8. maí 2025
Sambandsþing STF - Samvinna er samtakamáttur
Sambandsþing STF fór fram dagana 2.–3. maí þar sem fulltrúar komu saman til að ræða málefni STF og aðildarfélaganna, styrkja samstarfið og horfa sameiginlega til framtíðar. Þingið var sett föstudaginn kl. 9:00 og þingstörf stóðu yfir í tvo daga við góðan róm og sterkan samstöðuanda. Þinginu lauk með glæsilegum hátíðarkvöldverði á laugardagskvöldi þar sem dansað var fram á nótt.
Þingstörf gengu afar vel og umræðurnar einkenndust af jákvæðum anda, lausnamiðuðu samtali og samstöðu. Lokaniðurstaðan var skýr: Samvinna er samtakamáttur.
Fulltrúar Stjórnendafélags Norðurlands vestra á þinginu voru Jón Örn Stefánsson, formaður og Ásmundur Baldvinsson, gjaldkeri. Um þessar mundir er verið að skipa í nefndir á vegum sambandsins, sem hefja störf á haustmánuðum. Jón Örn verður í orlofsnefnd, Ásmundur mun áfram sitja í laganefnd og Hulda Björg Jónsdóttir ritari félagsins verður í markaðs- og samskiptanefnd.
